98 starfa án starfsleyfa
Þar segir að SAF hafi allt frá áramótum unnið að því að kanna ástand í starfsleyfismálum fyrirtækja í ferðaþjónustu, en félagsmenn hafi lengi kvartað yfir leyfislausum samkeppnisaðilum og hafi samtökin sent upplýsingar jafnóðum til leyfisveitenda.
„Ráðinn var starfsmaður í verkið og er niðurstaða þeirra kannana, sem nú þegar hafa farið fram, sú að 98 ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur starfa án starfsleyfa. Á höfuðborgarsvæðinu fannst leyfislaust gistirými sem samsvarar tveimur 300 herbergja hótelum. Á Akureyri og á Reykjanesi reyndist 30% alls gistirýmis leyfislaust. Á Suðurlandi, í umdæmi Selfoss, eru nánast allir gististaðir með leyfi en það er verið að kanna sumarbústaðamarkaðinn. Enn er unnið að könnunum gististaða. Fjórar bílaleigur reyndust starfa án starfsleyfa,“ segir í fréttabréfi SAF.
Fleiri fréttir
- 07. apr 2011Íslensku Tónlistarverðlaunin
- 07. apr 2011Jazzhátíð Reykjavíkur
- 07. apr 2011Aðalfundur STEF
- 07. apr 2011Listahátíð í Reykjavík